Lögmannsstofa á Klapparstíg frá 1969
Við veitum einstaklingum, fyrirtækjum, félagasamtökum og sveitarfélögum ráðgjöf og flytjum mál þeirra, frá héraðsdómi til Mannréttindadómstóls Evrópu.
Fyrsta viðtal er án endurgjalds. Sími 547 2000
Um stofuna
Við teljum að allir eigi að vera jafnir fyrir lögum og eiga kost á góðri lögfræðiaðstoð til að þekkja rétt sinn og standa á honum. Það hefur verið grunnurinn að starfi stofunnar frá upphafi.
Eigendur stofunnar eru Sigurður Örn Hilmarsson, Sigrún Ingibjörg Gísladóttir og Stefán Örn Stefánsson, og Ragnar starfar áfram við stofuna sem ráðgjafi. Með þeim vinna lögmenn, lögfræðingar og laganemar.
Ragnar Aðalsteinsson
Ragnar stofnaði stofuna árið 1969. Í hverju dómsmálinu á fætur öðru hefur hann varið tjáningarfrelsi, réttindi fólks sem svipt hefur verið frelsi, persónuvernd og rétt landeigenda gagnvart ríkinu.
Lesa um RagnarsbókSérsvið
Lögmenn Réttar starfa á flestum sviðum lögfræðinnar, fyrir dómstólum jafnt sem við ráðgjöf.
Mannréttindi
Við gætum mannréttinda fólks óháð kyni, trú, efnahag, skoðunum, þjóðerni eða annarri stöðu. Það hefur verið kjarninn í starfi stofunnar frá því Ragnar Aðalsteinsson stofnaði hana. Við rekum mál vegna mannréttindabrota fyrir íslenskum dómstólum og Mannréttindadómstól Evrópu, og lögmenn stofunnar hafa kennt mannréttindi á háskólastigi.
Málflutningur
Við flytjum mál fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti, og fyrir gerðardómum. Þegar betra er að leysa ágreining utan dómstóla sjáum við um samningaviðræður og sáttaumleitanir. The Legal 500 og Chambers and Partners hafa árum saman raðað Rétti meðal fremstu stofa landsins á þessu sviði.
Fjármuna- og fyrirtækjaréttur
Við vinnum fyrir stór og lítil fyrirtæki, fjármálastofnanir, fjárfestingarsjóði, fjárfesta og einstaka hluthafa. Teyminu stýrir Sigurður Örn Hilmarsson hæstaréttarlögmaður, einn eigenda stofunnar. Helstu verkefnin eru samrunar og yfirtökur, kaup og sala félaga, ágreiningur hluthafa, skráning á hlutabréfamarkað, endurskipulagning og fjármögnun, áreiðanleikakannanir, samningagerð, stofnun og slit félaga, alþjóðleg viðskipti og innheimta skulda.
Fjármagnshöft og gjaldeyrismál
Frá því gjaldeyrishöftin voru sett á síðla árs 2008 höfum við ráðlagt innlendum og erlendum aðilum um höftin og gjaldeyrismál. Erlendir aðilar hafa leitað til okkar vegna fjárfestinga sinna á Íslandi, og innlendir aðilar vegna samskipta við Seðlabanka Íslands um kaup á vörum og þjónustu, fjárfestingar og lántökur erlendis.
Gjaldþrotaréttur og bústjórn
Við förum með bústjórn þrotabúa, rekum riftunarmál og sinnum öðrum málum sem tengjast gjaldþrotum einstaklinga og fyrirtækja. Lögmenn stofunnar hafa líka ráðlagt um alþjóðlegar slitameðferðir fjármálafyrirtækja.
Hugverkaréttur
Við gætum réttinda höfunda og eigenda hugverka: ritverka, listaverka, uppfinninga, vísindarannsókna, vörumerkja og einkaleyfa. Meðal þeirra sem við höfum unnið fyrir eru Þjóðleikhúsið, Nýlistasafnið og Rithöfundasamband Íslands, auk fjölda listamanna. Lögmenn stofunnar hafa starfað á þessu sviði í áratugi.
Verktakaréttur
Við ráðleggjum um verktakasamninga og um reglur sem gilda um opinber innkaup og útboð á vörum, verkum og þjónustu.
Eignarréttur
Við höfum ráðlagt og flutt mál um eignarrétt, nábýlisrétt og fasteignakaup í áratugi. Lögmenn stofunnar hafa flutt stór landamerkjamál og þjóðlendumál, og mál þar sem hið opinbera hefur gengið á eignarrétt einkaaðila. Þeir hafa líka skrifað fræðigreinar á þessu sviði.
Stjórnsýsluréttur
Við rekum mál fyrir stjórnvöldum, sjálfstæðum úrskurðarnefndum og umboðsmanni Alþingis, til dæmis þegar fólk eða fyrirtæki vilja fá ákvörðun stjórnvalds endurskoðaða.
Verjendastörf og réttargæsla
Allir sakborningar eiga rétt á réttlátri málsmeðferð og við lítum á verjendastörf sem hluta af grunnskyldum lögmanna. Þar nýtist mannréttindastarf stofunnar vel. Við höfum varið fólk í ólíkum málum, allt frá Níumenningamálinu svonefnda eftir mótmælin við Alþingishúsið til fjármuna- og efnahagsbrota. Við sinnum líka réttargæslu fyrir þolendur afbrota.
Skaðabótaréttur
Við sækjum bætur fyrir fólk sem hefur slasast í umferðinni, í vinnu eða í frítíma, bæði með samningum og fyrir dómi. Við sinnum líka öðrum málum á sviði skaðabóta- og vátryggingaréttar.
Útlendinga- og flóttamannaréttur
Við aðstoðum fólk við umsóknir um íslenskan ríkisborgararétt og um dvalar- og atvinnuleyfi á Íslandi. Réttargæsla fyrir hælisleitendur og flóttafólk hefur lengi verið hluti af starfi stofunnar.